Sjókastið
Avsnitt

#27 Gísli Jóhann Hallsson - yfirhafnsögumaður

Dela

Hvað þarf til að taka við stjórninni þegar stærstu skip heims sigla inn á íslenskar hafnir?

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Gísla Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumann Faxaflóahafna, manninn sem hefur það hlutverk að leiða risaskip óhult inn til hafnar.

Gísli segir frá leiðinni inn í starfið, ábyrgðinni sem fylgir því að taka ákvarðanir undir mikilli pressu og hvernig það er að stíga um borð í erlend skip og taka við leiðsögninni þegar ekkert má fara úrskeiðis.

Við ræðum skemmtiferðaskipin, öryggismál, veður, strauma, tæknibreytingar og hvað getur farið úrskeiðis þegar skipaumferð verður sífellt stærri og flóknari. Einnig ræðum við stöðu íslenskra hafna, hafnastefnu landsins og hvort við séum nægilega undirbúin fyrir framtíðina.

Þáttur um sjóinn, ábyrgð, tækni og manninn sem þarf að halda ró sinni þegar mest reynir.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Aríel Pétursson. Innehållet i podden är skapat av Aríel Pétursson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.