Sjókastið
Avsnitt

#26 Jón Steinar Árnason - áhættusækni skipstjórinn og frumkvöðullinn

Dela

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Steinar – skipstjóra, útgerðarmann og frumkvöðul sem hefur tekið stóra slagi, unnið mikla sigra en jafnframt tekið dýfur og alltaf lent á fótunum aftur.

Hann ólst upp á Seyðisfirði, fór ungur á sjó og mótaðist snemma af hörðum veruleika sjómennskunnar. Leiðin lá á Gullfoss, í stýrimannaskólann og áfram í skipstjórn þar sem ábyrgðin var algjör.

En sagan stoppar ekki þar.

Jón fór út í viðskipti af krafti, byggði upp eignir og rekstur – og lét ekki þar við sitja heldur stofnaði flutningaskipafélag í beinni samkeppni við stærstu aðila á markaðnum. Á leiðinni hefur hann upplifað það sem fæstir gera: orðið efnaður, tapað miklu, byggt sig upp aftur – og tekið áhættur sem hefðu getað farið verr.

Hann segir frá skipi sem sökk undan honum og þeim augnablikum þegar allt hangir á bláþræði. Einnig fer hann yfir viðskiptaævintýri bæði hér heima og erlendis, þar sem reglurnar eru allt aðrar og leikurinn oft harðari.

Þetta er saga manns sem hefur siglt í gegnum allar brælurnar sem lífið lífið hefur upp á að bjóða – og flýtur enn.

Sjókastið – sögurnar af sjónum og fólkinu sem lifir þær.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Aríel Pétursson. Innehållet i podden är skapat av Aríel Pétursson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.