Hörður Kjartansson er einn af þessum mönnum sem halda samfélaginu gangandi án þess að berja sér á brjóst
Í áratugi starfaði hann sem húsvörður hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði – þar sem hann varð fljótt þekktur sem maðurinn sem vissi allt, gat lagað allt og sagði aldrei nei. Hann náði einstöku sambandi við íbúa hjúkrunarheimilisins og var hvers manns hugljúfi, en á bak við hlýjuna leyndist líka uppátækjasamur hrekkjalómur og ótal sögur sem lifa enn í veggjum staðarins.
Samhliða þessu var Hörður í áratugi virkur í björgunarsveitastarfi, meðal annars sem skipstjóri á björgunarskipi. Þar hefur hann staðið í erfiðum aðgerðum, farið út í aðstæður sem flestir myndu forðast og tekið þátt í að bjarga mannslífum þegar mest á reynir.
Í þættinum ræðum við lífið á hjúkrunarheimili, hvað það kennir manni að vinna með fólki á síðari stigum lífsins, menninguna og húmorinn sem heldur hlutunum gangandi – og svo hina hliðina: sjóbjörgun, hættuna, adrenalínið og ábyrgðina.
Við förum líka inn í erfiðasta kafla lífs hans, þegar hann veiktist alvarlega og var kominn við dauðans dyr og hvernig hann náði sér aftur á strik.
Þetta er þáttur um mann sem hefur bæði haldið utan um daglegt líf annarra og staðið í fremstu víglínu þegar á reynir.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Aríel Pétursson. Innehållet i podden är skapat av Aríel Pétursson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.