Seinni níu
Avsnitt

#112 - Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach

Dela

Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár.

Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt.

Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið.

Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach.

Frábær þáttur á léttum nótum að venju!

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson. Innehållet i podden är skapat av Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.