Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir.
Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar stendur árlega að.
Fannar er ekki í golfklúbbi. Þess í stað spilar hann aðallega með vinum sínum sem starfa í bönkum eða ráðgjafafyrirtækjum og eiga greitt aðgengi að helstu golfvöllum landsins. Hann er með 20 í forgjöf og hefur verið fastur í þeirri forgjöf undanfarin ár - ekki hjálpaði þegar hann fékk brjósklos í hálsinn fyrir tveimur árum.
Í þættinum er auðvitað komið víða við. Við fáum draumaholl og skemmtilega kraftröðun þar sem Youtube golfkennarar koma við sögu.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson. Innehållet i podden är skapat av Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.