Seinni níu
Avsnitt

#120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt

Dela

Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum.

Höddi Magg byrjaði að spila golf um þrítugt og spilar lítið um þessar mundir. Raunar svo lítið að hann gaf syni sínum golfsettið sitt fyrir ekki svo löngu. Hann er því minna á vellinum en fylgist þeim mun ástríðufyllra með íþróttinni í sjónvarpinu.

Bryson DeChambeau fékk einnig smá pláss í þættinum, en Höddi er ekki sérlega hrifinn af þeim kylfingi. Við hituðum líka upp fyrir Opna breska og fórum yfir ýmislegt fleira.

Draumahollið er á sínum stað og að sjálfsögðu ræðum við líka örlítið um fótbolta.

Frábær þáttur að venju!

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson. Innehållet i podden är skapat av Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.