Álhatturinn
Avsnitt

Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef

Dela

Flestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know. Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og súran húmor til að rífa niður tjöldin hjá valdastéttinni og afhjúpa keisarann fyrir að vera ekki í neinum fötum. Allt þar til þann 6. ágúst 2021, þegar Trevor lagði frá sér hljóðnemann og þagnaði í eitt skipti fyrir öll, aðeins 41 árs að aldri.

Opinbera skýringin er snyrtileg, hrein og bein: Hörmulega óheppilegt slys. Fall fram af svölum á heimili hans í Malibu að næturlagi eftir að hafa aðeins verið að fá sér. Einsog menn gera. En rétt eins og með aðra „góðvini þáttarins“ sem falla frá á grunsamlegan hátt, þá eru ekki allir sem kaupa hreinu og beinu söguna sem yfirvöld og meginstraumsmiðlarnir vilja að við trúum. Var Trevor Moore ef til vill komið fyrir kattarnef? Ef svo er, hversvegna? Og að undirlagi hverra?

Var hann ef til vill farinn að hreyfa við hlutum sem hefðu betur mátt kyrrt liggja? Trevor gerði nefnilega vægast sagt beitta ádeilu á tónlistariðnaðinn og Hollywood í sketsinum „Help Me“, þar sem hann söng um fórnir, mansal og myrkraverk elítunnar bak við tjöldin,  myndband sem endar á dularfullan hátt með hans eigin andláti. Og hvað með ástríðufullan áhuga hans á öllu því sem Álhattar elska að ræða og pæla í? Hann gerði sketsa um Illuminati, Seðlabanka Bandaríkjanna, dularfullt andlát JFK og atburðina 11. september. Var hann orðinn mögulega of óþekkur og óþægilegur vegna þess að hann sáði fræjum sannleikans í gríni sínu og fékk almenning til að staldra við og spyrja spurninga?

Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í feril þessa óvenjulega listamanns. Þeir rannsaka aðstæður á svölunum í Malibu, spyrja út í bilaðar eftirlitsmyndavélar, kynna sér falið myndmál í sketsunum og velta því fyrir sér hvort Trevor Moore hafi í raun greitt sína vitneskju og uppljómun með lífi sínu. 

Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að grínistanum Trevor Moore hafi verið komið fyrir kattarnef. 


HLEKKIR Á ÍTAREFNI

Intro https://youtu.be/nCP3LZoxABs?is=vQv1PB0oWQ9-HP66

Biden Kynnir Elton John kllippa https://youtu.be/sGvUDMNHLZ

Jim Carrey Illuminati í kimmel : https://www.youtube.com/watch?v=eG9i7d8yfKQ

9/11 sketch klippa https://youtu.be/vq6p4wX88Z0

Grapist sketch https://youtu.be/EzgUGY36gqM

Help me/8bieber https://youtu.be/Edi_hydymNQ

Illuminati sketch  https://youtu.be/_574Rxxez2c

Saga bandaríkjanna sketch - https://youtu.be/0-Lvv1f5Qu4

Support the show

UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Álhatturinn. Innehållet i podden är skapat av Álhatturinn och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.