Álhatturinn
Avsnitt

P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2

Dela

Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra?

Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið við af UFO, herinn og allskonar dularfullar stofnanir hafa neyðst til að viðurkenna að eitthvað óútskýrt sé á sveimi og svo hafa menn með allskonar skírteini, vottanir, gráður hernaðarferil og “trúnaðarupplýsingar” stigið fram og hljómað eins og mestu Álhattar eða illa skrifaðar persónur í ótrúverðugri vísindaskáldsögu. Undarleg óútskýranleg  fyrirbæri, stórfurðuleg  hegðun  radarskjáa, óskýr og gruggug  myndbönd sem þó eru ekki jafn óskýr og áður og kerfi sem virðist vera hannað til að tryggja að enginn fái neitt endanlegt  eða afgerandi svar. Sama hversu mergra spurninga er varpað fram eða hversu merkilegir pappírar einstaklingarnir eru, sem spyrja þeirra. Hvað í veröldinni er eiginlega í gangi!?

Strákarnir fara yfir þingmannayfirheyrslurnar og vitnisburðinn sem setti internetið á hliðina, hvað var sagt, hvað var ekki sagt og hvers vegna þetta endar alltaf ‘a s-mu g-mlu tuggunni:

 “Við getum hvorki staðfest neitt né afneitað neinu”

Þeir félagar ræða líka mótrökin, þar sem bent er á að leyndarhyggja og óljósar yfirlýsingar geti allt  eins verið merki um jarðneska tækni í þróun, óvandaðar ályktanir, rangtúlkun eða klassískt psyop sem á að láta almenning elta ljósbletti á himninum í örvæntingu til þess að athyglin beinist ekki að einhverju merkilegra og mikilvægara eins og td Epstein skjölunum. 

Hvað varð t.d um alla drónana sem virtust svífa um í tuga eða hundraðavís alls staðar og hvergi.. Dularfull flýgildi við herstöðvar, orkuver og viðkvæma innviði, er þetta nýtt og hátæknilegt njósnakerfi, heræfing eða eitthvað sem á ekki að sjást?  Eru þetta Kínverjar, Rússar eða jafnvel einkaaðilar? Eða einfaldlega tilraunir yfirvalda? Eða sama gamla sagan í nýjum búningi þar sem “ógnin” er notuð til að réttlæta meiri leynd, meiri fjárframlög og færri spurningar?

Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar velta fyrir sér fullyrðingu sem margir hæðast að, en aðrir hræðast að sé sönn, að geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hylmi yfir tilvist þeirra. 

Support the show

UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Álhatturinn. Innehållet i podden är skapat av Álhatturinn och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.