Álhatturinn
Avsnitt

Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu

Dela

Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam).  Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð til húsa í sömu byggingu. Flutningaþjónusta sem á á pappír að vera burðarás kerfisins, en virðist í raunheimum vera draugafyrirtæki.

En er þetta raunverulega þaulskipulagt samsæri, eða bara kerfisbundin vanhæfni, sem fékk að blómstra og grassera vegna þess að enginn þorði að spyrja spurninga eða benda á að keisarinn væri ekki í neinum fötum?  Hvernig geta milljónir dollara runnið til “þjónustu” sem enginn sér eða veit hvort að er í raun til? Hvernig gat eftirlitið brugðist ítrekað aftur og aftur? Eru þetta einangruð tilvik eða mynstur sem birtist þegar opinbert fé, eftirlitslausir einkaaðilar og veik stjórnsýsla mætast?

Og svo stóra spurningin sem enginn virðist vilja svara, án þess að æsa allt upp: Af hverju virðist umræðan beinast svona oft að sómalska samfélaginu? Er það vegna þess að öll spjót beinast  þangað, eða vegna þess að pólitík og fjölmiðlar kunna að græða á “réttum” sökudólgum? Er þetta kannski allt saman bara kynþáttahyggja og fordómar hvítra miðaldra karla? Hverjir raunverulega græða, hverjir tapa, og hverjir þegja vísvitandi? Og ef þetta er “viljandi” frekar en “óvart” … hverjum þjónar það? Hverjir græða á þessu? Spilltir stjórnmálamenn? Tim Walz?  Stjórnvöld í Sómalíu?

Þetta og svo margt, margt fleira undarlegt og áhugavert í nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem strákarnir reyna að átta sig á því hvað í veröldinni sé eiginlega í gangi í Minnesota og spyrja sig þeirrar mikilvægu spurningar hvort að yfirvöld í Minnesota séu viðriðin milljarða dollara svikamyllu í fylkinu, sem stundum hefur verið nefnt Sómalíusvindlið.

Support the show

UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Álhatturinn. Innehållet i podden är skapat av Álhatturinn och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.