Pólitíska forystu og reglur um starfsemi og vöxt orkugleypandi gagnavera skortir á Íslandi. Eftirlit með greininni og lög um hana vantar og gagnaver þurfa ekki einu sinni að fara í umhverfismat, þótt eitt slíkt geti haft víðtækari áhrif á náttúruna og samfélagið en heil stórvirkjun. Andstaða við þau er stórpólitísk í mörgum löndum. Geir Guðmundsson, orkuverkfræðingur, Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur og Gauti Kristmannsson prófessor, ræða gagnaverabúskapinn. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir stýra umræðum.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.