Mánudagur 19. október
Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar
Í fyrsta þætti Manngildis er gesturinn Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Við kynnumst Sóldísi, ræðum starf Átaks og mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun fái sjálft að hafa áhrif á ákvarðanir sem varða líf þess. Hlustar samfélagið á raddir fatlaðs fólks? Hvernig stöndum við okkur þegar kemur að sjálfsákvörðunarrétti, sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu? Manngildi er nýr samtalsþáttur á Samstöðinni þar sem við gefum fólki rödd, aukum skilning og ræðum hvernig við getum skapað betra samfélag fyrir okkur öll.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.