Samstöðin
Avsnitt

Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn

Dela

Mánudagur 19. október Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn

Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan daginn vekur þungmálmamengað drykkjuvatn á Svalbarða. Þóroddur Bjarnason prófessor og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum um mannvæna tækni ræða við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á okkur og samfélag okkar.Ásdís Olsen ræðir við Gísla Bachmann stjörnuspeking um áhrif fréttaumfjöllunar Kompás ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Hugvekja um söfn og samfélag er heitið á nýrri bók eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor. Hann ræðir við Björn Þorláks um persónulega sýn fræðimannsins.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Samstöðin. Innehållet i podden är skapat av Samstöðin och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.