#159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réði hann sig til Flugmálastjórnar Íslands, nú Samgöngustofu þar sem hann sinnti eftirliti með flugrekstri í tæpan áratug. Ómar flýgur enn sér til ánægju á Cessnu 185 og stendur að veglegri uppbyggingu ásamt fleirum í Múlakoti í Fljótshlíðinni.
Einkar áhugavert spjall við flugstjóra sem hefur upplifað og tekið þátt í gríðarlegum breytingum og þróun atvinnuflugs hérlendis og erlendis um áratuga skeið.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Jóhannes Bjarni Guðmundsson. Innehållet i podden är skapat av Jóhannes Bjarni Guðmundsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.