#155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir
Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar í dag. Helga Braga segir hér stuttlega frá ýmsu á sínum langa ferli og rifjar upp skemmtileg atvik og líka erfiðar aðstæður eins og þegar WOW varð gjaldþrota. Hún segist njóta þess mjög í dag að geta sameinað flugfreyjustarfið og leiklistina. Bæði súist um samskipti við fólk og í flugfreyjustarfinu eru samskiptin við fólk alls staðar að úr heiminum. Hressandi spjall við stórskemmtilega konu í fluginu.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Jóhannes Bjarni Guðmundsson. Innehållet i podden är skapat av Jóhannes Bjarni Guðmundsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.