Flugvarpið
Avsnitt

#156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson

Dela

Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborginni, sem jafnrframt er hjartað í innanlandssamgöngukerfinu, skuli háður starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Hann ræðir líka um fyrirkomulag skipulagsmála á Keflavíkurflugvelli og um helstu verkefni sem þar eru framundan. Ásælni flugfélaga í að hafa leyfi til flugrekstrar á Möltu eru líka til umræðu í þættinum og þeirri spurningu varpað fram hvort íslensk stjórnvöld geti gert eitthvað til að efla íslenska flugrekendur í alþjóðlegri samkeppni. Áhugavert spjall fyrir alla þá sem vilja fylgjast með í flugmálum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Jóhannes Bjarni Guðmundsson. Innehållet i podden är skapat av Jóhannes Bjarni Guðmundsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.