Við fjöllum um stöðu leiðtoga stórveldanna þriggja Bandaríkjanna, Kína og Rússlands eftir fund þeirra í Kína í vikunni. Hann er að mestu talinn táknrænn og líklega ekki skref í áttina að friði í Evrópu. Við tölum við framkvæmdastjóra Amnesty sem segir að við lifum á tímum rándýranna, og nefnir þá Trump, Pútín og Xi í því sambandi, og svo á tímum hugleysingjanna, sem þora ekki að storka þeim og valdi þeirra.
Svo leikur tónlistin lykilhlutverk í þættinum. Söngur skipar stóran sess í lífi íbúa Eystrasaltsríkjanna. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við söngkonu frá Lettlandi um sönghefðina. Þar skipta þjóðlögin hundruðum þúsunda og hægt er að finna lag um nær öll hugsanleg verk daglegs lífs og um nær allar tilfinningar mannlegrar tilveru. Það var ýmislegt sem varð til þess á tíunda áratug síðustu aldar að ríkjunum tókst að komast undan oki Sovétríkjanna og að sumra mati var söngurinn eitt af þessu - enda hefur sönghefðin lengi verið birtingarmynd friðsamlegrar andspyrnu.
Svo er það James Bond. Við ætlum að kynnast Robert Pattinson, sem leikur njósnarann í næstu Bond-mynd. Við fjöllum líka um forvera hans og söguna, hver er þessi fígúra sem við höfum nú í næstum 70 ár nennt að horfa á í bíó. Og það er að mörgu að huga þó við vitum hver leiki Bond og hver leikstýri myndinni. Hver verður konan í lífi Bond, hver leikur skúrkinn og kemur ógnin úr fortíðinni eða framtíðinni, eða frá Rússlandi eins og stundum áður.