Tungumálið hefur mikil áhrif á það hvernig við getum tjáð okkur um okkar kynhneigð og kynvitund og er okkur því mjög mikilvægt. En hvers vegna notum við til dæmis orðið hinsegin sem regnhlífarhugtak yfir lesbíur, homma, tvíkynhneigða, transfólk, intersex fólk, eikynhneigða, pankynhneigða osfrv.? Og hvers vegna er mikilvægt fyrir okkur að geta tjáð okkar kynhneigð, kynvitund og kyntjáningu í tungumálinu? Í þættinum spjallar Ingileif við Þorbjörgu Þorvaldsdóttir um tungumálið og Vallý Hirst um persónulega reynslu af því að rekast á veggi kynjaðs tungumál.
Þátturinn er sá fimmti í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi.