Við höfum öll fyrirfram mótaðar hugmyndir um alls konar hluti sem við þekkjum ekki nægilega vel. Þetta á einnig við um hinseginleikann - þar sem mýtur verða oft til í hugum fólks vegna einhvers sem sett er fram í kvikmyndum eða dægurmenningu. Er hugarheimur hinsegin fólks þar oft spunninn út frá gagnkynheigðu normi, og því hinar ýmsu ranghugmyndir sem verða til. Í þættinum fjallar Svandís Anna Sigurðardóttir um framsetningu hinseginveruleika í dægurmenningu, og Ugla Stefanía Kristjönu Jónsdóttir segir frá sinni persónulegu reynslu af því að vera stöðugt stimpluð út frá hinsegin mýtum.
Þátturinn er sá fjórði í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi.