Með miklum breytingum á löggjöf undanfarna áratugi hefur það orðið mun auðveldara fyrir hinsegin fólk að eignast börn. Fyrir þessar miklu breytingar gat samkynja par hins vegar ekki eignast barn saman hér á landi. Þetta þekkja hjónin Hanna Katrín Friðriksson og Ragnhildur Sverrisdóttir sem fluttu af landi brott fyrir um 20 árum til að freista þess að búa til barn. Í þættinum spjallar Ingileif við þær hjón um ferðalag þeirra í þá átt að búa til fjölskyldu, sem ekki var alltaf auðvelt.
Þátturinn er sá sjötti og síðasti í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi.