Hér er Athyglisbrests-þáttur sem ber nafn með rentu, en til þess að hringja inn hátíðarnar fengum við sanna regulars í þáttinn: Engin önnur en þau Hjalta Vigfússon og Ásdísi Maríu Viðarsdóttur, enda fá önnur sem geta látið okkur hlæja jafn mikið og á sama tíma gert okkur jafn brjáluð í skapinu <3

Við ræðum einn lélegasta þátt sem gerður hefur verið(spoiler: Það er "And just like that"), plönum áramótapartý með besta þema í heimi, þrætum um hvort Reykjavík sökki eða ekki og förum í svona þúsund hlátursköst auk þess að missa þráðinn um það bil trilljón sinnum. Sönn fjölskyldustund!

Næsti þáttur verður eftir jólafrí, við óskum hlustendum gleðilegra jóla með miklu þakklæti fyrir hlustunina á þessu ári - þið eruð best!

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Útvarp 101. Innehållet i podden är skapat av Útvarp 101 och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.