Spegillinn
Avsnitt

Úrslit þingkosninga í Bandaríkjunum, varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi

Dela

Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum í gær. Það er algengt að flokkur sitjandi forseta tapi þingmeirihluta í kosningum á miðri setu hans en þessar niðurstöður og stærð sveiflunnar koma engu að síður á óvart. Kosningarnar snerust mikið um Donald Trump forseta, eins og hann lagði í raun upp með, en það kom á endanum niður á flokksbræðrum hans í Repúblikanaflokknum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Sverri Steinsson, doktor í stjórnmálafræði og kennara við Torontoháskóla.

Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í lögreglunni á Suðurnesjum, er einn höfunda nýrrar löggæsluáætlunar til næstu fimm ára. Rætt var við hann um þörfina á því að fjölga lögreglumönnum um tvö hundruð á næstu árum, hlutverk lögreglu til að takast á við fjölþáttaógnir og áherslu á þjóðaröryggi. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.