Flest stærstu sveitarfélög landsins hafa nú birt fjárhagsuppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026. Og staðan er ekki góð - þótt hún sé vissulega misjöfn. Sambands íslenskra sveitarfélaga tók saman uppgjör fimm stórra sveitarfélaga, Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Akureyrar. Við ræddum við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing samtakanna, um niðurstöðuna og um stöðu sveitarfélaga almennt.
Dómsmálaráðherra kynnti í vikunni löggæsluáætlun til næstu fimm ára, undir yfirskriftinni Traust lögregla - öruggt samfélag. Áætlunin er afrakstur vinnu stýrihóps um stefnumótun í löggæslu, sem ráðherra skipaði í byrjun árs. Áætlunin - eða stefnan - skiptist í þrjá yfirflokka: Traust lögregla, öruggt samfélag og svo fagleg og framsækin lögregla. Ævar Örn Jósepsson beindi sjónum síða að bræðingi úr tveimur fyrrnefndu flokkunum með einum höfunda áætlunarinnar, Rannveigu Þórisdóttur félagsfræðingi og sviðsstjóra þjónustusviðs hjá ríkislögreglustjóra.