Spegillinn
Avsnitt

Fylgi flokka og skipulögð brotastarfsemi

Dela

Fylgi flestra flokka er á svipuðum nótum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups og var í síðustu könnun en Miðflokkurinn bætir mestu við sig, tveimur prósentum milli kannana, fær rúm 17% og er þriðji stærsti flokkurinn. Samfylkingin sem er stærst með 29%, tapar um prósenti milli kannana, Sjálfstæðisflokkurinn stendur nánast í stað með 25% og fylgi annarra flokka breytist líka lítið sem ekkert, Anna Kristín Jónsdóttir fékk Viktor Orra Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði til að rýna í stöðuna.

Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið birti í liðinni viku. Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum er sérfróður um þennan málaflokk. Hann segir umfang þessarar brotastarfsemi mikla, hér sem annars staðar, en skipulögð glæpastarfsemi er talin einhver mesta ógn sem steðjar að vestrænum samfélögum. Ævar Örn Jósepsson talar við hann.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.