Þegar frestur til að skila inn umsögnum um drög að reglugerð dómsmálaráðherra um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt rann út fyrr í þessum mánuði höfðu ríflega 1.800 umsagnir borist. Gagnrýnt hefur verið hversu mjög framfærsluviðmiðin hækka, og varað við afleiðingum þessa. Rúnar Pálmason fjallar um málin og ræðir við Nínu Helgadóttur hjá Rauða Krossinum.
Icelandair ætlar að hefja beint, vikulegt flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust. Ætla mætti að það félli í góðan jarðveg hjá heimamönnum en svo var ekki. Ákvörðun Icelandair virðist falla í grýttan jarðveg og hefur talsvert verið gagnrýnd. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir það að mörgu leyti skiljanlegt. Ágúst Ólafsson ræðir við hana.
Kosið var í Svíþjóð um miðjan september og mjótt varð á munum. Rauðgræna blokkin fékk tæp 50% atkvæða og 176 fulltrúa á þingi. Bláa blokkin fékk tæp 49%, 173 þingmenn og borgaraleg stjórn Ulfs Kristersson, missti meirihluta sinn. Nær hálfum þriðja mánuði hefur enn ekki tekist að mynda ríkisstjórn. Anna Kristín Jónsdóttir leitar skýringa hjá sænska blaðamanninum Anders Svenson.