Í bréfi sem Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri sendi stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur 4. nóvember sagði hún blasa við að svigrúm væri til hagræðingar í rekstri Orkuveitunnar og rekstrarkostnaður Orkuveitunnar aukist um 62% fræa 2022 til 2025. Forstjórinn, Sævar Freyr Þráinsson, kom í Spegilinn til að ræða málið við Rúnar Pálmason.
Fundur forseta Bandaríkjanna, Kína og Rússlands í kínversku borginn Shenzen stóð í einn og hálfan tíma í morgun og eftir hann kepptust Donald Trump, Xi Jinpeng og Vladimir Pútín um að segja að hann hefði verið sögulegur, jákvæður og borið ríkulegan árangur. Varla er þó hægt að segja að árangurinn sé mjög áþreifanlegur utan þess að fundurinn var haldinn. Anna Kristín Jónsdóttir fer yfir málið.
Þau tímamót urðu í gærmorgun að bandaríska geimkönnunarfarið Voyager 1, sem skotið var á loft haustið 1977, var komið í 25 milljarða, 902 milljónir 68 þúsund 356 kílómetra fjarlægð frá Jörðu - eða eins ljósdags fjarlægð. Þessu fagna stjarneðlisfræðingar um veröld víða, þar á meðal Gunnlaugur Björnsson fyrrverandi rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands. Ævar Örn talaði við hann.