Gervigreind hefur valdið því að margir háskólar, meðal annars Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík, hafa endurskoðað hvernig staðið er að námsmati – próf eru til dæmis í auknum mæli munnleg og meiri áhersla lögð á lokapróf frekar en verkefnaskil.
Í umfjöllun New York Times nýverið kom fram að gervigreindin valdi bandarískum háskólum sem bjóða upp á fjarnám miklum áskorunum. Meðal annars séu dæmi um að stúdentar geti notað gervigreindar-erindreka til að sjá um námið frá a til ö, skila verkefnum, taka próf og jafnvel spjalla við aðra nemendur í gegnum samskiptaforrit.
Hver er þá staðan hér á landi? Rúnar Pálmason ræddi við Magnús Smára Smárason, verkefnastjóra gervigreindar hjá Háskólanum á Akureyri og Sólveigu Hallsteins, framkvæmdastjóra kennslu og þjónustu við Bifröst.
Bæjaryfirvöld í Múlaþingi þrýsta nú á Vegagerðina að ráðast í endurbætur á Fjarðarheiði og heimastjórn Seyðisfjarðar krafðist þess í bókun á síðasta fundi sínum að sett yrði sérstök fjárveiting í styrkingu og endurbætur vegarins. Þetta er hæsti fjallvegur landsins og sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu. Í ríflega mánaðargömlu minnisblaði Vegagerðarinnar kemur fram að undanfarin ár hafi ekki verið lagt í mikla vinnu við skoðun og greiningu á endurbótum á Fjarðarheiði þar sem fyrir hafi legið að jarðgöng myndu leysa veginn af hólmi innan tíðar.
Ágúst Ólafsson ræddi við Dagmar Ýr Stefánsdóttur, sveitarstjóri Múlaþings.
Þau tímamót urðu í vikunni að bandaríska geimkönnunarfarið Voyager 1, sem skotið var á loft haustið 1977, náði 25 milljarða, 902 milljóna, 68 þúsund 356 kílómetra fjarlægð frá Jörðu - eða eins ljósdags fjarlægð. Það er komið út úr sólkerfi okkar og heldur áfram að fjarlægjast okkur á ógnarhraða, rétt eins og systurfarið Voyager 2, sem er líka á hraðleið út úr sólkerfinu.
En hvert liggur leiðin og hvað tekur við hjá geimkönnuðinum Voyager 1? Ævar Örn Jósepsson ræddi við Gunnlaug BJörnsson stjarneðlisfræðingi um það.
Umsjón: Rúnar Pálmason
Tæknimaður: Jón Þór Helgason