„Víðtækur skilningur virðist ríkja á þeim hættum sem loftslagsbreytingar fela í sér, þótt aðgerðir skorti.“ Þetta er lykilsetning í nýútkomnu mati loftslagsráðs á skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaragerða í loftslagsmálum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Halldór Þorgeirsson, formann loftslagsráðs um mótvægis- og aðlögunaragerðir hér á landi í loftslagsmálum.
Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í síðasta mánuði að veita umboð til aðgerða sem geta leitt til breytinga á eignarhaldi félagsins. Hámarka á verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verði að Orkuveitan eigi félagið áfram, nýir eigendur eignist það að hluta eða í heild eða að það verði skráð á markað. En hvaða félag er Ljósleiðarinn og hvernig gengur reksturinn? Rúnar Pálmason ræddi um það við Þuríði Björg Guðnadóttur, framkvæmdastýru Ljósleiðarans.