Spegillinn
Avsnitt

Chrome-bækur læstar inn í skáp, nýtt gjald í höfnum, viðbrögð evrópskra ráðamanna við kosningum í Bandaríkjunum

Dela

Í Hagaskóla í Reykjavík fá nemendur ekki lengur afhentar Chrome-bækur til afnota, heldur eru þær geymdar í læstum skápum og aðeins notaðar þegar þörf er á. Þess í stað er notast við bækur, ljósrit, blöð og blýanta. Rúnar Pálmason ræddi við Ómar Örn Magnússon skólastjóra Hagaskóla.

Breytingu á lögum sem taka gildi um áramót og skylda hafnarstjórnir til að innheimta nýtt gjald af ákveðinni tegund skipa og báta, fylgir engin reglugerð. Þetta setur starfsfólk hafna um allt land í óþægilega stöðu, því leiðbeiningar um hvernig á hefja þessa nýju innheimtu eru ekki til. Ágúst Ólafsson fjallaði um málið og ræddi við Gyðu Mjöll Ingólfsdóttur, umhverfis- og gæðastjóra Faxaflóahafna.

Þótt núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum njóti takmarkaðra vinsælda í Evrópu, urðu fáir þar til að lýsa opinberlega yfir gleði sinni yfir sigri Demókrata í þingkosningunum vestanhafs á þriðjudaginn. Donald Trump á tvö ár eftir af embættistíð sinni og Evrópuríki þurfa áfram á stuðningi hans og samvinnu að halda - ekki síst hvað varðar Úkraínu. Björn Malmquist fjallaði um þetta í Speglinum.

Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.