Spegillinn
Avsnitt

Friðarviðræður í Abú Dabí og Loftslags(ginnungagapið

Dela

Tveggja daga friðarviðræður sendimanna Úkraínu og Rússlands undir forystu Bandaríkjanna byrjuðu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í morgun. Menn sátu þar við í fjóra tíma og sendimenn frá Moskvu og Kænugarði vildu lítið um fundinn í dag segja. Haft er eftir utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, sem var reyndar ekki á fundinum, að hann hafi verið árangursríkur. Fulltrúar Evrópu eru í Abú Dabí og hafa rætt við sendinefndir Úkraínu og Bandaríkjanna en Rússar hafa ekki tekið í mál að hleypa þeim að fundarborðinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Ólafsson prófessor og sérfræðing í málefnum Rússlands.

Enn er mögulegt að takmarka hlýnun Jarðar við 1,8 gráður, en til þess þarf markvissar, róttækar og umfram allt skjótar aðgerðir. Sporin hræða, því illa hefur gengið að draga úr losun - og hlýnun - undanfarin ár. Hvað gerist ef hlýnunin fer yfir tvær gráður? Og um hvað er rætt á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 31, í Tyrklandi? Elín Björk Jónasdóttir sérfræðingur í loftslagsmálum svarar því í samtali við Ævar Örn Jósepsson.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.