Þingkosningar voru haldnar í Ísrael í gær. Þegar búið er að telja yfir 85 prósent atkvæða er ljóst að hvorug meginfylkingin í ísraelskum stjórnmálum mun ná hreinum meirihluta. Afar litlu munar á fylgi þeirra en hægri blokkin, sem Benjamin Netanyahu leiðir, hefur þó eilítið forskot á stjórnarandstöðuna, þar sem Gadi Eisenkot er forsætisráðherraefni. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson prófessor í sögu Miðausturlanda.
Hvað gerist í Serbíu eftir kosningarnar á sunnudaginn, þar sem bundinn var endi á fjórtán ára valdatíð Alexanders Vucic forseta og flokks hans? Breytast samskipti Serbíu við nágrannaríkin, við Rússland - og hvað með umsókn Serbíu um aðild að Evrópusambandinu? Björn Malmquist fjallaið um það.
Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitarfélaga nær aðeins út að þessari fjarlægð frá landi og einnig yfirráðasvæði eigenda jarða sem liggja að sjó. Sveitarfélög hafa lengi reynt að fá þessu breytt og vilja hafa frekara skipulagsvald en þarna segir og geta haft um það að segja hvað fer í sjóinn inni í fjörðum. Ágúst Ólafsson fjallar um úrskurð sem lögmaður landeigenda telur marka tímamót.