Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið stóð nýverið fyrir sviðsmyndaæfingu um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) vegna loftslagsbreytinga og líklegar afleiðingar þess fyrir Ísland.
Elín Björk Jónasdóttir vann að undirbúningi æfingarinnar. Hún er líka í stýrihópi sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem skipaður var til að fara yfir stöðu vísindalegrar þekkingar á AMOC og öðrum loftslagsvendipunktum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana.
Á Íslandi starfa þrjú alþjóðleg gagnaversfyrirtæki sem reka sjö gagnaver. Fyrirtækin, sem eru að mestu í erlendri eigu, hafa aukið umsvif sín mikið og stefna öll að frekari uppbyggingu á Íslandi. Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur en þar sem þau eru öll í erlendri eigu að mestu má ætla að þau skili minna til landsmanna en stóru tölurnar gefa til kynna. Rúnar Pálmason ræðir við Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins.