Spegillinn
Avsnitt

Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, mögulegar siglingar á milli Aberdeen og Seyðisfjarðar, óleyfilegar framkvæmdir við gagnaver Google í Finnlandi

Dela

Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, samkvæmt nýrri rannsókn. Innviðaráðherra hefur boðað heildarendurskoðun á byggðakerfi sjávarútvegs í haust. Sértæki byggðakvótinn eru aflaheimildir sem Byggðastofnun úthlutar. Strandveiðar og línuívilnun komu lakast út hvað byggðafestumarkmiðin varðar. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræddi við Vífil Karlsson.

Hafnaryfirvöld í sveitarfélaginu Múlaþingi telja nauðsynlegt að fjölga verkefnum og styrkja höfnina á Seyðisfirði þar sem útlit er fyrir talsverðan samdrátt í flutningum um höfnina. Reglulegar landanir á fiski hafa þegar dregist verulega saman og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitar- og hafnarstjóri Múlaþings, segir einnig útlit fyrir samdrátt í komum skemmtiferðaskipa. Ágúst Ólafsson ræddi við hana.

Skammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandlega afgirt svöðusár í annars ræktarlegum skóginum sem umlykur bæinn. Þar er búið að fella um 250.000 tré síðan í sumar, til að rýma fyrir gagnaveri á vegum Google. Opinber eftirlitsstofnun hefur stöðvað framkvæmdirnar og hyggst kæra þær til lögreglu. Það þykir mörgum heldur seint í rassinn gripið. Ævar Örn Jósepsson fjallaði um þessar framkvæmdir.

Umsjón: Rúnar Pálmason. Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.