Fimm Evrópusambandsríki hafa náð samkomulagi við yfirvöld í Rúanda um að taka við fólki sem leitað hefur hælis í ríkjunum fimm og verið endanlega synjað um það. Þetta eru Þýskaland, Austurríki, Holland, Grikkland og Danmörk, sem hefur beitt sér fyrir þessu um árabil en orðið lítið ágengt, þar til nú. Þessum áformum hefur verið fagnað en þau hafa líka verið fordæmd. Ævar Örn Jósepsson talar við Önnu Lúðvíksdóttur framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International, en Amnesty er á meðal 47 alþjóðasamtaka sem mótmæla þessu harðlega.
Háskólar víða um heim hafa brugðist við framförum í gervigreind – og hættunni af því að hún sé notuð til að svindla - með ýmsum hætti – ekki síst með því að breyta námsmati. Ritgerðir, heimadæmi og annað slíkt hafa vikið fyrir munnlegum prófum og lokaprófum sem tekin eru í lokuðu umhverfi. Rúnar Pálmason tók stöðuna hjá stóru íslensku háskólunum, nú þegar lokapróf annarinnar eru ýmist hafin eða á næsta leiti, og ræðir við Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur hjá HÍ og Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur hjá HR.