Fólk hefur kannski tekið eftir því undanfarna viku að birst hafa myndbönd á samfélagsmiðlum undir yfirskriftinni Spurning dagsins. Þar spyrja ólíkir einstaklingar, oft börn, almennra spurninga eins og til dæmis „Er það satt að fólk í gamla daga hafi þvegið á sér hárið með pissi?“ og „Hvað er eiginlega mikið DNA í líkamanum?“ og svo svara sérfræðingar og vísindafólk spurningunum. Þessi myndbönd eru hluti af vísindamiðlun Háskóla Íslands og tengjast rannsókninni VAL sem Háskólinn er að biðja fólk um að taka þátt í þessa dagana. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor við Háskóla Íslands kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá vísindamiðlun og rannsókninni Val.
Helstu þættir íslenska fornvarnarmódelsins eru samvera fjölskyldunnar, skipulagt fornvarnarstarf, útivistartími og eftirlit og reglulegar kannanir meðal ungmenna til að kortleggja áhættu- og verndandi þætti í hverju bæjarfélagi og skóla. Nú á að endurvekja þetta forvarnarmódel og það á ekki að vera átak heldur áframhaldandi verkefni því nýjar áskoranir hafa orðið meira áberandi á síðustu árum eins og aukin notkun rafretta, nikótínpúða, áhrif samfélagsmiðla og lakari andleg líðan ungmenna. Bjarni Fritzson rithöfundur er formaður skóla og Frístundaráðs Reykjavíkurborgar og hann kom í spjall í þáttinn í dag.
Jónatan Garðarsson kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Sigfús Halldórsson, en hann er auðvitað meðal allra fremstu dægurlagahöfunda sem Ísland hefur alið og enn í dag þekkja flestir landsmenn lagasmíðar hans þótt þær séu sumar hverjar frá því fyrir seinna stríð. Jónatan fræddi okkur um feril Sigfúsar í dag og við heyrðum þrjú af hans lögum í þættinum.
Tónlist í þættinum:
Dagný / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, ljóð Tómas Guðmundsson)
Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson)
Í grænum mó / Ellý Vilhjálms söng með Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson)
Litla flugan / Sigfús Halldórsson (Sigfús Halldórsson, texti Sigurður Elíasson)