Það eru 36 meðlimir í Ástarsögufélaginu og í dag kom út önnur bók félagsins, Titringur. Félagsfólk hefur flest lokið meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands eða eru rithöfundar sem hafa fengið verk sín útgefin. Markmiðið er að skrifa vandaða texta sem eiga kjarna sinn á einn eða annan hátt í ástinni, í ljósi hennar og skugga. Brynja Sif Skúladóttir og Anna Ingólfsdóttir komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá útgáfunni og félaginu.
Hvað fær okkur til að hlakka til að mæta í vinnuna? Eru það verkefnin, launin, kaffið eða fólkið sem við vinnum með? Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi hefur verið að skoða virði vináttu í vinnunni, að velta fyrir sér hversu stóran þátt vinnufélagar eiga í því hvernig okkur líður í vinnunni. Rannsóknir sýna að starfsfólk sem á náinn vin í vinnunni er líklegra til að vera virkt í starfi og leggja sitt af mörkum til árangurs. Guðrún var hjá okkur í dag og sagði okkur betur frá þessu.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gunnar Snorri Gunnarsson fyrrverandi sendiherra og ráðuneytisstjóri. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda
Jórunn Viðar, ævisaga e. Árna Heimi Ingólfsson
Veisla þrjú e. Steinunni Sigurðardóttur
Hjá Leyningsvötnum, ljóðabók Hannesar Péturssonar
Með höppum og glöppum e. Svein Einarsson
Gistiheimilið í Beroun e. Gyrði Elíasson
La solitude des professeurs est infinie eftir Yannick Haenel
Atelier Albertine e. Anne Carson
Decreation e. Anne Carson
Ilíónskviður, Biblían og Íslendingasögur
Proust, Balzac, Zola, Thomas Mann og Hesse, Sigfried Lenz
Tónlist í þættinum:
Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)
Ástarvalsinn / Bubbi (Bubbi Morthens)
Þá uxu blóm / Silva Þórðardóttir (Sigfús Halldórsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti)