Hvernig er að vera kona í atvinnugrein sem hefur lengi verið mótuð af körlum? Við ætlum að kynna okkur nýja íslenska heimildarmynd, Háhitasvæði, sem fjallar um líf og störf kvenna í jarðhita geiranum á Íslandi, Kenía og Japan. Í henni segja konur af ólíkum kynslóðum frá reynslu sinni af því að stíga inn í karllægan bransa. Myndin er framleidd og leikstýrt af Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska, en þær hafa áður gert nokkrar heimildarmyndir sem hafa náð mikilli athygli og hlotið verðlaun víða um heim. Gréta var á línunni í þættinum í dag og sagði okkur frá myndinni og samstarfi þeirra Susan.
Edda Olgudóttir kom til okkar í vísindaspjallið í dag og í þetta sinn skoðaði hún stöðuna sem komin er upp þegar kemur að mislingum í Bandaríkjunum. Nú í nóvember er sem sagt eitt ár frá því að mislingastofn fór að láta á sér kræla. Edda útskýrði fyrir okkur hvernig þetta er tilkomið og hvað þetta þýðir, í vísindaspjalli dagsins.
Í Versta falli er sex þátta sería sem verður sýnd í sjónvarpi Símans í byrjun desember. Þættirnir segja frá Katrínu, ungri konu sem reynir að koma lífi sínu í réttan farveg þrátt fyrir að allt í kringum hana virðist stöðugt vera við það að fara úr böndunum. Anna Hafþórsdóttir er handritshöfundur og fer einnig með aðalhlutverkið. Hún byggir söguna á ýmsu sem hún hefur upplifað og aðrir hafa upplifað og svo er þetta skáldskapur auðvitað og eitt og annað fleira. Við ræddum við Önnu í dag.
Tónlist í þættinum:
Dúddi rádd'okkur heilt / Eggert Þorleifsson og Stuðmenn (Sigurður Bjóla, texti Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson)
Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar)
This fire / Tine Dickow og Emilana Torrini (Tine Dickow)
Engin veit / Sigrún Harðardóttir (Lennon & McCartney, texti Eysteinn Jónasson)