Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrst á blokkflautu og svo á píanó. Hún lauk 7 stigum í klassískum píanóleik og eftir það lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hóf nám í jazzsöng og lauk burtfararprófi vorið 2005. Samhliða söngnáminu tók hún 7 stig í jazzpíanóleik. Ragnheiður hefur síðan verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og sent frá sér allavega 10 sólóplötur. Við fórum um víðan völl með Ragnheiði í dag og fengum svo að heyra lifandi flutning þar sem eiginmaður hennar Guðmundur Pétursson kom og spilaði á gítar í beinni.
Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag var spjallið á almannavarnanótum í kjölfarið á átaki Almannavarna og Rauða krossins, 3dagar.is og spáðum aðeins í dósamatinn sem okkur er ráðlagt að hafa í viðlagakassanum góða. Hvaða dósamatur verður fyrir valinu?
Tónlist í þættinum:
Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
Alveg sama hvað / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
Er líða fer að jólum / Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson lifandi flutningur í hljóðveri nr. 6 (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson)