Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Gefur út bækur um ósýnilegu börnin, rannsókn um 65 ára og eldri á vinnumarkaði og vísindaspjallið með Eddu

Dela

Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir stofnaði nýlega bókaútgáfuna Mannkennd á Siglufirði sem sérhæfir sig í barnabókum um fötlunarfjölbreytileika. Hugmyndin kviknaði þegar dóttir hennar, sem er einhverf og langveik og mikill lestrarhestur, fór að spyrja um bækur um börn eins og hana og þær var erfitt að finna. Því tók hún ráðin í eigin hendur. Ingibjörg kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókaútgáfunni, en von er á fyrstu bókinni, Lísa og Líó, í byrjun desember en hún er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin. Við fræddumst svo um rannsókn um upplifun háskólamenntaðra sérfræðinga sem eru 65 ára og eldri og eru enn á vinnumarkaði. Fólk sem nálgast hefðbundinn eftirlaunaaldur hefur verið talsvert rannsakað, en minna er vitað um hvernig fólk á aldrinum 65-85 ára upplifir áframhaldandi þáttöku á vinnumarkaði. Hvaða þættir hvetja það og móta vilja og möguleika þeirra til að halda áfram að vinna. Erla Sólveig Kristjánsdóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild HÍ og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við sömu deild unnu þessa rannsókn og sögðu okkur betur frá henni og fyrstu niðurstöðum hennar í þætti dagsins. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur nýjar fréttir sem lofa góðu þegar kemur að því að sigrast á sýklalyfjaónæmum bakteríum. Þar koma svokallaðir fagar til sögunnar, en Edda útskýrði þetta að vanda betur fyrir okkur í spjalli dagsins.

Tónlist í þættinum: Verum í sambandi / Sprengjuhöllin (Snorri Helgason, Sprengjuhöllin, Bergur Ebbi) Undir dalanna sól / Karlakór Reykjavíkur ásamt Óskari og Pétri Péturssonum (Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) Joshua Fit the Battle of Jericho / Golden Gate kvartettinn (höf.óþekktur) Eina nótt / Snorri Helgason (Kris Kristofferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.