Skotganga er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi og fyrirtækið reka þau hjónin Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson. Fyrirtækið var stofnað 2008 og eins og nafnið gefur til kynna var í fyrstu boðið upp á gönguferðir í Skotlandi. Í dag eru í boði gönguferðir víða um Evrópu og sérstakar kvennaferðir svo eitthvað sé nefnt. Það stóð til að vera einungis 9 mánuði í Skotlandi en árin eru orðin 24 og þau hjónin segja gott að búa þar. Við spjölluðum við Snorra og Ingu í dag, en þau eru stödd á landinu bláa í nokkra daga.
Við heyrðum svo af verkefninu Glóð um jólin til styrktar Konukoti. Þetta er fjórða árið sem Erling Jóhannesson gullsmiður býr til nýjan kertastjaka, en hann hefur nú gert þann fjórða, þeir verða að lokum sex. Við fengum þær Ilmi Kristjánsdóttur leikkonu sem hefur verið með í verkefninu frá upphafi og Halldóru R. Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Konukots til að segja okkur betur frá verkefninu og starfsemi Konukots.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að segja okkur frá íslensku tónlistarfólki. Í þetta sinn var komið að Pétri Kristjánssyni. Hann setti auðvitað sterkan svip á íslenska dægurtónlist, með Pops, Pelican og Paradís, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, en þær voru fleiri og byrjuðu ekki allar á Pé. Jónatan fór með okkur yfir feril Péturs í dag og við heyrðum auðvitað tvö lög sem hann söng.
Tónlist í þættinum:
Fönn, fönn, fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon)
These Boots are Made for Walkin’ / Nancy Sinatra (Lee Hazlewood)
Seinna meir / Start (Jóhann Helgason)
Jenny Darling / Pelican (Magnús Eiríksson)