Í aðdraganda að degi íslenskrar tungu verður haldið málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Tilefnið er áform stjórnvalda um að leggja skólagjöld á háskólanema frá löndum utan EES sem búa og starfa her á landi með tímabundið dvalarleyfi, sem er svo forsenda ótímabundins dvalarleyfi. Líklegt þykir að gjöldin muni í reynd girða fyrir að stórir hópar fólks sem gegnir samfélagslega mikilvægum störfum og greiðir skatta og skyldur hér á landi geti sótt sér kennslu í íslensku sem öðru máli við Háskólann. Védís Ragnheiðardóttir, námsleiðarformaður Hagnýts náms í íslensku sem annað mál og Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur á skrifstofu hjúkrunar á Landspítala sögðu okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
Vísnavinir voru stofnaðir haustið 1976 og eiga því 50 ára afmæli um þessar mundir. Félagið var stofnað að norrænni fyrirmynd og er uppruni slíkra félaga í Svíþjóð og kölluðust þau Visans vänner. Norrænu vísnafélögin mynduðu með sér samband og voru Vísnavinir aðili að því. Vísnavinir héldu í nokkur ár úti mánaðarlegum vísnakvöldum á Hótel Borg og í Þjóðleikhúskjallaranum og þar kom fram tónlistarfólk eins og Bubbi Morthens, Bergþóra Árnadóttir, Eyjólfur Kristjánsson ofl. Við heyrðum í dag í þeim Hjalta Jóni Sveinssyni og Gísla Helgasyni sem voru meðal stofnmeðlima.
Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag sagði hún okkur frá rannsóknum þar sem sýnd er fram á tengingu augna við sogæðakerfið, hreinsunarkerfi líkamans.
Tónlist í þættinum:
Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)
Áframhald / Gísli Helgason (Gísli Helgason)
Gott áttu veröld / Bergþóra Árnadóttir og Hálft í hvoru (Bergþóra Árnadóttir, ljóð Tómas Guðmundsson)
Augun þín blá / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason)