Endómetríósa er algengur en oft vangreindur sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, frjósemi og andlega líðan. Framundan er sérstakt námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk þar sem farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferðarmöguleika og þverfaglega meðferð og einnig verður farið yfir þá þekkingu sem liggur fyrir á þessum flókna sjúkdómi. Konur með endómetríósu hafa oft talað um að vanþekking og jafnvel fordómar fyrirfinnist hjá heilbrigðisstarfsfólki en sem betur fer er farið að fjalla meira um þennan sjúkdóm. Við ræddum við Ragnheiði Oddnýju Árnadóttur sérfræðing í fæðinga og kvensjúkdómalækningum í þættinum í dag.
Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV til okkar með enn einn gullmolann af safni RÚV. Í þetta sinn var það innslag frá árinu 1949, metnaðarfullur barnatími þar sem Hildur Kalmann stjórnaði bílaleik í útvarpssal. Helga Lára útskýrði þetta betur fyrir okkur í dag og leyfði okkur að hlýða á innslagið, sem átti vel við í dag, því í gær var minningardagur um þá sem hafa látið lífið í umferðinni.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Ragnhildur Hjaltadóttir lögfræðingur. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ragnhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Höfundur verður til. Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta. Ritstjórar Ásta Kristín Benediktsdóttir og Guðrún Nordal.
Blái pardusinn e. Sigrúnu Pálsdóttur.
Ljóð muna ferð - Úrval úr ljóðum Sigurðar Pálssonar, Kristján Þórður Hrafnsson valdi og ritar inngang, Ragnar Helgi Ólafsson ritar eftirmála.
Duna - saga kvikmyndagerðarkonu, skráð af Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Kristínu Svövu Tómasdóttur
Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur
Ævisaga Jórunnar Viðar e. Árna Heimi Ingólfsson
Salka Valka e. Halldór Laxness
Pollyanna e. Eleanor H. Porter
Tónlist í þættinum:
Áfram Jón / Stuðmenn (Jakob Frímann, texti Ragnhildur Gísladóttir)
Vinarkveðja / Haukur Morthens (B. Hoyer, texti Theódór Einarsson)
Bjössi á Hól / Sextett Ólafs Gauks (Gaunt, texti Plausor eða Jónas Mána Jónsson)