Við töluðum við Ara Ólafssyni söngvara, sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018, en hann fór til í London haustið eftir keppnina. Þar lærði hann fyrst klassískan söng, færði sig svo í kjölfar Covid yfir í söngleikjanám og hefur síðustu tvö ár verið á sýningarferðalagi um heiminn með Phantom of the Opera, einni þekktustu og umfangsmestu söngleikjasýningu heims, þar sem hann meðal annars lék óperudrauginn sjálfan. Við fórum með Ara yfir söngferilinn hingað til, frá náminu í London, ferðasögur með óperudrauginn og margt fleira með Ara og einnig sagði hann okkur frá Hátíðartónleikum hans og Dísellu Lárusdóttur sem verða í Norðurljósasal Hörpu 13. desember.
Frá 1. október var lyfjafræðingum sem lokið hafa tilskilinni endurmenntun heimilt að bólusetja í apótekum. Það er fyrsta skrefið í átt að því að auka aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Álag á heilbrigðiskerfi fara vaxandi víða um heim vegna hækkandi aldurs og aukinnar lyfjanotkunar og hafa Bretland og Kanada til dæmis brugðist við með því að nýta sérþekkingu lyfjafræðinga í auknum mæli. Við töluðum við Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur formann Lyfjafræðingafélags Íslands og Sigríði Pálínu Arnardóttur lyfjafræðing og eiganda Reykjanesapóteks um þessi mál í þættinum í dag. Þær sögðu okkur einnig frá málþinginu Lyfjasúpu sem fram fór í síðustu viku um lyfjanotkun eldra fólks en í Reykjanesapóteki hefur verið boðið uppá þjónustu við að fara yfir lyfjanotkun og hvort lyf fari t.d. illa saman við inntöku ofl.
Tónlist í þættinum:
Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
Heim / Ari Ólafsson (Þórunn Erna Clausen)
Án þín - með þér / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jón Múli og Jónas Árnasynir)