Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Birgitta Haukdal föstudagsgestur og kálbögglar og blöðrukál í matarspjallinu

Dela

Birgitta Haukdal söngkona og rithöfundur er ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar síðustu áratugi. Það má segja að símtal frá Gunnari Þórðarsyni hafi breytt lífi hennar, þegar hann bauð henni að taka þátt í ABBA-sýningu á Hótel Íslandi þegar hún var aðeins 17 ára. Sýningin varð gríðarlega vinsæl og gekk lengi. Í framhaldi af því flutti hún til Reykjavíkur, en hún er fædd og uppalin á Húsavík. Eftir að ABBA sýningin kláraðist gekk hún í hljómsveitina Írafár og þau náðu fljótt eyrum landsmanna og voru var um árabil ein vinsælasta hljómsveit landsins og sú hljómsveit er enn að koma fram á tónleikum. Árið 2015 gaf hún út sína fyrstu barnabók, Lára lærir að hjóla, og hefur í kjölfarið gefið út 30 bækur, flestar um Láru og Ljónsa, en líka tónlistarbækur fyrir börn. Við fórum með Birgittu aftur í tímann, norður á Húsavík og á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, en næst á dagskrá hjá henni eru jólastórtónleikar í Hörpu með stórskotaliði íslenskrar popptónlistar.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti í dag talaði hún um haust og vetrarmat, þar komu til dæmis kálbögglar og blöðrukál við sögu.Og svo glugguðum við aðeins aftur í Eldhúsbókina á gömul húsráð. Tónlist í þættinum: Ég sjálf / Írafár (Vignir Snær Vigfússon og Birgitta Haukdal) Móðir / Birgitta Haukdal (Birgitta Haukdal) Kisa mín / Birgitta Haukdal og Saga Júlía Benediktsdóttir (George Riedel, texti Böðvar Guðmundsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.