Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan og fiðluleikarinn Gréta Salóme Stefánsdóttir. Margir kynntust henni fyrst þegar hún keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision, en hún hefur spilað á fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og svo hefur hún ferðast víða, bæði erlendis og hérlendis, og sungið, til dæmis í mörg ár á risastórum skemmtiferðaskipum sem Disney samsteypan á. Hún er fædd og uppalin í Mosfellsbænum og við fórum með henni fram og aftur í tíma og rúmi, en rétt er að taka fram að við tókum upp viðtalið í upphafi vikunnar þar sem Gréta var komin yfir settann tíma á meðgöngu með þriðja barnið sitt. Tveimur dögum síðar fór allt í gang og dóttirin er komin í heiminn og við sendum Grétu og hennar fjölskyldu innilegar hamingjuóskir af því tilefni!
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en í dag sagði hún okkur sögu, sanna sögu, sem er talsvert neyðarleg en líka fyndin. Við viljum ekki spilla efni sögunnar það eina sem við getum sagt fyrirfram er að aðalsöguhetjurnar eru rjómaterta og svartur labrador hundur.
Tónlist í þættinum:
Án þín / Gréta Salóme Stefánsdóttir (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson)
Ástarþula / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
Síðustu jól / Gréta Salóme Stefánsdóttir og Sverrir Bergmann (Gréta Salóme Stefánsdóttir)