Víðsjá
Avsnitt

Svört orkídea, Sex ed, Öld ímyndunaraflsins og Fegursta blómið

Dela

Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og gleymd skáld. Í upphafsverkinu Fegursta blómið fléttar hann til dæmis saman textabrotum úr skáldsögum Halldórs Laxness við kórflutning Schola Cantorum. Platan er væntanleg á streymisveitur á á vínyl.

Bergur Ebbi gef nýverið frá sér bók sem kallast Öld ímyndunaraflsins, þar sem gervigreindin er meðal annars viðfangsefnið, en bókin er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina, eins og segir á bókakápu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins.

Við heyrum einnig leikhúsrýni, en Sjöfn Asare Hauksdóttir fór á kynfræðslukarnivalið Sex Ed sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

Ljóðabókin Svört Orkídea eftir hina færeysku Vónbjörtu Vang hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Bókin er þriðja ljóðabók Vang, en áður hafa komið út Millumlendingar 2011, og Djúpini 2017. Það er vestfirska bókaútgáfan Skriða sem gefur út Svarta Orkídeu, og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir sem þýddi. Rætt er við Móheiði í þættinum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.