Víðsjá
Avsnitt

Samfélag í bleyti til Feneyja, Sinfóárið framundan, Haukur Þorgeirs pistill #11

Dela

Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi frá sér dagskrárbækling fyrir næsta tónleikaár og verður þar ýmsu til tjaldað. Nýr Aðalhljómsveitarstjóri, Barbara Hannigan, tekur við. Nýr staðarlistamaður og staðartónskáld taka til starfa og margar stórstjörnur sígildrar tónlistar koma að utan. Guðni Tómasson, framkvæmdarstjóri sveitarinnar, heimsækir okkur og segir frá tónleikaárinu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor fræðir okkur um sagnakvæðið Gullkársljóð en þar segir frá konungsdótturinni Æsu sem verður ástfangin af álfi í skarlatsklæðum. En við byrjum á arkitektúr. Í síðustu viku var tilkynnt hverjir fara fyrir Íslands hönd á tvíæringinn í arkitektúr í Feneyjum, en verkefni Basalt arkitekta, Samfélag í bleyti, hefur verið valið framlag Íslands. Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, kemur í heimsókn og segir frá því sem koma skal.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.