„Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“ Fischer systur eru gestir Víðsjár í dag og við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar; æskuna í Mosfellssveti, landasala, húsanda, útiveru og skapandi leiki. Lyktina af náttúru Íslands, minningarnar sem hún kveikir og lífið sem hún hefur gefið fjölskyldunni í formi sköpunarverka en einnig samveru og nýrra minninga.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.