„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég ætti heima í óperuheiminum sem hinsegin söngkona,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir söngkona og framleiðandi hjá hinÓpera, nýs óperukompanís sem hefur það að markmiði að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið eins og það er. Hópurinn frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu á föstudag en hún segir ástarsögu eins frægasta bóhemapars 20. aldarinnar: Gertrude Stein og Alice B Toklas. Íris Björk, Herdís Anna Jónasdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir eru gestir Víðsjár í dag, þar sem þær segja frá verkinu og syngja einn ástardúett.
Einnig verður rætt við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Lausnargjaldið og Sjöfn Asare rýnir í sýninguna Bíddu bara; þetta reddast sem sýnd er í Bæjarbíói.