Við höfum beðið lengi eftir vélmennum sem geta gengið inn í okkar mannlega veruleika.
Hollywood hefur lengi lofað okkur að það sé mögulegt.
Á sama tíma eru milljónir manna í tilfinningatengslum við hugbúnað sem er bara texti á skjá.
Í þessum þætti ræðum við um samband manneskju og vélar og hvers vegna iðnaðurinn heldur áfram að elta manngerð vélmenni.
Við förum frá vélmenna draumum og vonum yfir í hvað sé í raun og veru verið að byggja í dag. Við skoðum það útfrá óþægilegum spurningum um samþykki, einmanaleika og þörfina fyrir nálægð.
Er sálin þegar komin í hugbúnaðinn, eða erum við enn að bíða eftir hulstrinu eða líkamanum sem fullkomnar sköpunarverkið?
Tæki og tól vikunnar
Wispr Flow AI-knúin raddritun sem virkar í hvaða appi sem er. Þú heldur niðri flýtilykli, talar eðlilega, og hún hreinsar fylliorð og setur inn greinarmerki á meðan þú talar. https://wisprflow.ai
Msty Skrifborðsapp fyrir þau sem vilja prófa staðbundin AI-módel á einum stað, án þess að þurfa að kunna forritun. https://msty.ai
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Gunnur og Gunnlaugur. Innehållet i podden är skapat av Gunnur og Gunnlaugur och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.