Í október 2021 breytti Mark Zuckerberg nafni Facebook í Meta. Hann lofaði okkur nýju interneti, heimsbyggð þar sem við myndum vinna, kynnast og lifa lífi okkar sem avatar í sýndarveruleika.
Meta tapaði yfir 83 milljörðum króna á þessum draumi. Samt fór hlutabréfaverðið upp um 3,5% daginn sem fyrirtækið tilkynnti niðurskurð.
Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvað gerðist í raun og hvert sýndarveruleikinn er að fara.
Í þættinum:
Af hverju féll metaverse? Og er þetta saga um tækni sem kom of snemma, eða tækni sem var aldrei ætluð venjulegu fólki?
VR sem virkar: frá klínískri notkun til iðnaðar, og af hverju Quest 3 og Ray-Ban gleraugu segja okkur meira um framtíðina en nokkur avatar.
Við tókum upp hluta af þættinum í Horizon worlds.
Hlustaðu á þáttinn og sjáðu hvert þetta er allt að stefna.
Tæki og tól:
Perplexity, gervigreindarleitarvél og rannsóknatól: perplexity.ai
NotebookLM frá Google, gervigreindarpodcast- og greiningartól: notebooklm.google.com
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíóí Stokkhólmi.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Gunnur og Gunnlaugur. Innehållet i podden är skapat av Gunnur og Gunnlaugur och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.